Það fæddist brandari í dag:
Garnastífla coecum hægða.
Wednesday, January 14, 2009
Monday, January 12, 2009
Siðferði talna
Ég var í aðgerð í dag. Vegna þess að ég tapaði steinn-skæri-blað keppni við Hrafnkel bekkjarfélaga minn sem var með í skurðstofunni þá fékk ég ekki að aðstoða. En horfði þó á aðgerðina. Ég var að vísu eftir á frekar feginn að vera ekki skrúbbaður inn þar sem það voru ekkert gríðarlega spennandi verkefni sem Hrafnkell tókst á við. Helst að halda fæti á lofti í langan tíma.
Þegar maður fylgist með aðgerðum án þess að vera skrúbbaður inn, hefur maður oft meira frelsi til að fá ný sjónarhorn á sjúklinginn og sjá betur. Það var raunin í þessari aðgerð. Mér gafst einnig tími til að detta í svolitla hugleiðslu. Ég man nú fæst af því en það sem ég man skrifa ég niður hérna til gamans.
Aðgerðin snerist í stuttu máli um það að hlúa að brunasjúklingi. Það er gert á ýmsa vegu og er t.d. ein leiðin að flysja ysta lag húðarinnar, epidermis ásamt smá hluta af dermis, af einum stað á líkama sjúklingsins og færa annað. Þetta er gert með apparati (dermatome) sem er hægt að líkja við ostaskera. Afflysjaða húðin er þannig mekanískt færð á annan stað í þeim tilgangi að hjálpa gróandanum þar með því að auka staðbundið á byggingarefnin og verja svæðið fyrir áreiti.
Ég fór að hugsa um að þessi aðgerð er í grunninn unnin upp úr sömu aðferðafræði og ferli sem frumur líkama okkar (og frumur flestra lífvera jarðar) nýta. Ég hef kynnt mér þetta ferli í tengslum við rannsóknarverkefni sem ég gerði í sumar og á 3. ári. Því hefur verið fleygt til að lýsa svona líkindum að ekkert sé nýtt undir sólinni og það er mikið til í því. Það eru líka ákveðnar ástæður fyrir því.
Þetta ferli sem um ræðir kallast sjálfsát. Það er ferli sem fruman getur framkallað ef hún verður fyrir svelti, skorti á vaxtarþáttum eða þarf að endurvinna skemmd prótein eða frumulíffæri. Í þessu ferli setur fruman saman einingar úr fjölmörgum próteinum sem umlykja frumulíffæri, prótein eða annað innihald umfrymis frumunnar. Þessar sjálfsátsblöðrur eru svo látnar renna saman við leysiblöðrur sem fruman hefur smíðað sem leysa upp innihald sjálfsátsblöðrunnar með ýmsum ensímum. Eftir verða amínósýrur og fitusýrur, byggingareiningar sem fruman getur svo nýtt sér í framhaldinu til að viðhalda sér. Með öðrum orðum, fruman étur hluta af sjálfri sér til að bæta upp skort á öðrum stöðum.
Það eru ýmis mynstur í þessum heimi sem lífverur beita, meðvitað en langoftast ómeðvitað til að hafa áhrif á umhverfi sitt. Öll byggjast þau á ákveðnum tölum og mynstrum þeirra sem vefa saman eðli okkar alheims. Þessar torræðu tölur hafa t.d. verið nefndar pí og náttúrulegi logrinn. Eðli alheims okkar fæðir svo af sér ferli eins og t.d. efnahvörf og flóknari útfærslu þeirra, líf. Allar aðferðir okkar, orsakir og afleiðingar eru því byggðar upp úr mynstrum talna sem þessara.
Nú hefur okkur verið kennt að lífið sé eitthvað sem bera skuli virðingu fyrir og það sé jafnvel æðra en aðrir leikir talna okkar heims sem mynda þessi mynstur. Ég er því sammála, enda er það eitthvað sem mér hefur verið innrætt.
Það er hinsvegar spurning hversu mikla virðingu þessar tölur bera fyrir lífinu en ég geri mér litla sem enga grein fyrir siðferði talnanna í okkar alheimi og þá t.d. hvers vegna þær vefa þessi mynstur.

Monday, January 05, 2009
Train of thoughts
Ég átti andvökunótt í gær. En samt alveg æðislega andvökunótt.
Ég fíla nefnilega stundum svona andvökunætur þar sem maður hugsar um allt nýja stöffið sem maður veit og skipuleggur hugsanir sínar. Hugsar fram í tímann, hugsar um lífið, vini, stelpur, menntun og sköpun. Algjör snilld. Svona svipað og maður ætti hvort sem er að vera að gera ef maður væri sofandi. Ég er reyndar drulluþreyttur núna þrátt fyrir að hafa fengið mér blund. En það er þess virði.

Saturday, January 03, 2009
Wednesday, December 31, 2008
Það er gríðarlegur heigulháttur og tilgangslaus fylgispekt sem Kolbrún Bergþórsdóttir boðar í Mogganum í gær. Mér sýnist hún meira að segja vera að svara ákveðinni grein sem hún þorir ekki einu sinni að tilgreina.
Hún segir að það megi ekki vera ósáttur við eitthvað án þess að koma með tillögu að breytingu. Því er ég algjörlega ósammála. Það á ekki að þurfa að vera forsenda, til þess að mega sýna að maður sé ósáttur við núverandi stöðu mála, að maður sé með hugmynd um breytingu. Breytingin kemur líka þegar vígin falla.
Ég sé fyrir mér Kolbrúnu ræða við vinkonu sína hvers sambýliskona beitir ofbeldi á hverjum degi. Vinkonan er ósátt og vill slíta samvistum. Kolbrún segir þá á sinn yfirvegaða og rökvísa máta: "Já en þú verður þá að koma með hugmyndir um hverjum þú ætlar að búa hjá ef þú vilt ekki búa hjá henni".

Saturday, December 20, 2008
Stjórnvöld eiga á suman hátt að vera eins og kríur. Sveima kringum varplendið. Verja það fyrir ránfuglum.
Þau hafa samt verið meira eins og dúfur. Tómt augnaráð. Flögrandi um stúkurnar. Skítandi á hausinn á táknmyndum þjóðarstoltsins.
En það er einn mikilvægur flötur á þessu.
Ef það hefðu verið sett höft á bankana á sínum tíma. Á tímum ímyndaða góðærisins þar sem ekki mátti gera neitt til að hrekja auðmennina úr landi. Auðmennina sem væru nú að skapa þessi “gífurlegu verðmæti” þá hefði aldeilis verið maldað í móinn. Andinn var einfaldlega þannig. Þá hefðum við einnig séð fólk á Austurvelli að baula og púa.
Það hefði þó óneitanlega verið öllu skemmtilegra að sjá Sigurjón Árnason, Bjöggana, Bjarna Ármanns, Hannes Smára og Jón Ásgeir vaðandi drulluna á Austurvelli.
Við megum ekki gleyma ránfuglunum. Þetta eru menn sem hafa unnið við það óáreittir að ljúga því að 2+2 séu 5. Í langan tíma.
Það er mjög mikilvægt að áherslan í mótmælunum liggi ekki bara á linkind stjórnvalda gagnvart illfyglum.
Mótbyr almennings gegn fjölmiðlalögunum á sínum tíma afsakar þó ekki stjórnvöld. Ábyrgðin er einnig þeirra. En gleymum ekki ránfuglunum. Þeir munu halda áfram að blóðga okkur og éta börnin okkar.

Sunday, November 16, 2008
Frábær fýr
Ég held ég hafi séð einn skemmtilegasta mann á Íslandi áðan.
Maður hlýtur allavega að vera helvíti skemmtilegur ef maður
getur boðið sjálfum sér út að borða og haft svo gaman af
að maður lygnir aftur augunum og sælubrosir út í bæði.

Sunday, November 09, 2008
Mig dreymdi að Ísland og framtíðin bæri í skauti sér einhverskonar neo-kommúnisma ala Equilibrium. Þó kannski ekki alveg eins extrem. T.d. þá var ég að fara með einhverju fólki í supermarket og þá hafði víst ríkið tekið yfir verslun í landinu og sameinað í alveg risa-risastóra byggingu. Byggingin var meira að segja svo stór að þegar maður komst inn, eftir að hafa beðið í einhverja stund í röð, þá var þar samgöngukerfi, einhvers konar lestarkerfim sem voru þó litlir, opnir básar svipað og í tívolí. Þar gátu 3-4 setið í í einu og fluttu básarnir þá á þann stað í búðinni sem þeir vildu komast á. Áður en við gátum sest í þessa bása þurftum við þó að ganga í gegnum eitthvað tékk. Þrír verðir tóku á móti okkur og leituðu á okkur. Handahófskennt völdu þeir víst líka út manneskju til að taka í aukatékk. Einn þeirra valdi mig til að fara í tékk. Það fólst í því að dýfa höndunum í djúpbláan vökva í skál. Láta hendurnar standa þar í 2 mínútur og skola þær svo með tærum vökva í annarri skál. Þetta átti að leiða í ljós hvort ég væri "skítugur" á höndunum. Ég var ekki alveg viss hvort það var að vera almennt skítugur eða hvort það var eitthvað sérstakt efni sem hér um ræddi.
Einnig dreymdi mig að Myllan væri með útibú fyrir neðan efsta hluta Laugavegs þar sem Suðurlandsbraut byrjar. Á götunni var svo umferðareyja með litlum viðarkofum sem á stóð "Brauð" og var einskonar geymsla. Haukur og Heimir voru með mér á rölti þarna og þeim datt í hug að það væri sniðugt að opna þessar geymslur. Þær voru ólæstar svo þeir hófust handa við að stela heyi sem var í taupokum í geymslunni enda var hey víst orðið töluvert verðmæt vara á þessum tíma.

Tuesday, November 04, 2008
Sökudólgar kreppunnar
Úps. Ég er víst ekki hæfur til að koma nálægt viðskiptum, þar sem ég er karlmaður. Það er víst ólíklegt að ég hafi verið alinn upp til að taka tillit til annarra eða finna til og sýna samkennd.
Hvernig væri það ef karlar myndu koma fram í hrönnum og segja að ástæða kreppunnar séu þau ítök (litlu sem miklu) sem konur hafi haft í viðskiptum. Hinir kvenlegu eiginleikar hafi hreinlega mengað stöðugleika og valdið óróa og óöryggi sem olli svo því að bátnum hvolfdi? Talið sé að fyrirtíðarspenna hafi átt hlut að máli og verið sé að vinna að lausnum á því.

Friday, October 24, 2008
Wednesday, October 22, 2008
Friday, October 17, 2008
Eftir fyrstu hlustun á nýju Secret Machines plötuna (S/T) þá hef ég það á tilfinningunni að hér sé á ferðinni, eitt svaðalegasta dæmi sem ég hef heyrt um plötu sem hreinlega kaffærir sjálfri sér. Of-unnasta plata sem ég hef heyrt lengi, því miður, því sum lögin hefðu getað orðið mun betri án glimmersins. T.d. trommu noise fuckið í "The walls are starting to crack", hversu vandræðalegt getur eitt breakdown orðið?........svona vandræðalegt. Það vantar líka allan kraft í sönginn í flestum lögunum, ég heyrði live- upptöku af "Last believer, drop dead" sem var svo hundraðfalt meira sannfærandi. "I never thought to ask" drukknar í delayum, skelfilegt. Vonandi vinnur platan á.
Monday, October 13, 2008
Hamstur

Heyrst hefur að ástæðan fyrir því að helstu dólgar viðskiptalífsins hafi ekki mætt í viðtöl undanfarið sé að þeir séu uppteknir við að sýna samkennd gagnvart almenningi. Þeir hafa heyrt sögur af ákveðnu fyrirbæri sem er vinsælt nú á dögum og vilja ólmir taka þátt. Þetta fyrirbæri kalla menn víst að hamstra. Þannig hefur nú sést til nokkurra þeirra hlaupa og hjóla sem aldrei fyrr á hreystitækjum sínum, fyrir opnum tjöldum. Þetta er gert í þeirri von að fólk sjái að þeir taki ábyrgð og séu venjulegir menn sem hamstra eftir allt saman.
Sunday, October 12, 2008
Tuesday, October 07, 2008
Sunday, October 05, 2008
Saturday, October 04, 2008
Thursday, October 02, 2008
Hér með kunngjörist: Ísland er á sýru
Það er kostulegt (og vonandi ekki lýsandi fyrir þjóðina) að þrjár vinsælustu fréttir vikunnar hjá eyjunni.is séu þessar:
1. Staðfest: Kynlífsmyndband af Britney til sölu
2. Patrick Dempsey gefinn fyrir flengingar
3. Eva Mendes skotin í Keiru Knightley
Þrjár vinsælustu fréttirnar hjá visi.is lofa ekki miklu betra:
1. Afturendi Aniston vekur athygli - myndir
2. Gallabuxur Katie Holmes gagnrýndar - myndir
3. Lesbíurnar fá ekki frið í fríinu - myndir
Og loks af vef dv.is:
1. Rændur af berbrjósta ljóskum
2. Finnst kynlíf með Paris Hilton ógeðslegt
3. Bubbi vonast til að halda húsinu

Monday, September 15, 2008
Ég hef það gott þessa dagana, amk miðað við aðstæður. Ástin er hverful og ellikerling seilist eftir ættingjum mínum. Undanfarna daga hef ég setið klukkustundunum saman á rasskinnunum í niðurníddum leikskóla sem læknadeild HÍ var svo elskuleg að redda okkur vesenis námsmönnunum. Á flestum öðrum stöðum þróaðri landa teldist það sjálfsagt að nemendur hefðu sérútbúna aðstöðu til lesturs og náms. Ég held mínu striki enda er ég frískur eins og morgundöggin eftir alla þessa rigningu.
Er að fara í HNE próf á miðvikudaginn og verður það endirinn á ákveðnu skurki og byrjunin á annars konar geðveiki. Rumpa þessu af. Svo er það vísindaferð á föstudaginn í Landsvirkjun, auk þess sem sama dag verð ég 23 ára gamall. Ég ætla að sletta ærlega úr klaufunum, svo mikið er víst.
Mér barst tilkynning í dag í tölvuskeyti þess efnis að 14 læknanemar myndu vera í verknámi á Fjórðungsspítala Akureyrar þessa önnina. Þar á meðal eru ég, Hrafnkell og Tómas, enda sóttum við um að fara í þetta og fengum tímabilið sem við sóttumst eftir, tvær síðustu skólavikurnar í desember. Það verður vonandi og væntanlega stuð.

Subscribe to:
Posts (Atom)