Monday, October 13, 2008

Hamstur


Heyrst hefur að ástæðan fyrir því að helstu dólgar viðskiptalífsins hafi ekki mætt í viðtöl undanfarið sé að þeir séu uppteknir við að sýna samkennd gagnvart almenningi. Þeir hafa heyrt sögur af ákveðnu fyrirbæri sem er vinsælt nú á dögum og vilja ólmir taka þátt. Þetta fyrirbæri kalla menn víst að hamstra. Þannig hefur nú sést til nokkurra þeirra hlaupa og hjóla sem aldrei fyrr á hreystitækjum sínum, fyrir opnum tjöldum. Þetta er gert í þeirri von að fólk sjái að þeir taki ábyrgð og séu venjulegir menn sem hamstra eftir allt saman.

0 comments: