Sunday, November 16, 2008

Frábær fýr

Ég held ég hafi séð einn skemmtilegasta mann á Íslandi áðan.
Maður hlýtur allavega að vera helvíti skemmtilegur ef maður
getur boðið sjálfum sér út að borða og haft svo gaman af
að maður lygnir aftur augunum og sælubrosir út í bæði.

7 comments:

Kristjana Erna said...

:)

Henrik said...

Haha; ég bara verð að spyrja; hvaða myndskeið er þetta efst til hægri á síðunni? Hvert er bókmenntafræðilegt gildi þess? Að kommentin séu eins og vatnsblöðrur í andlitið? (Þ.e. ef textinn fyrir neðan myndina vísar í hana?)

Maze said...

já það mætti segja að maður væri að setja sjálfan sig á skotlínuna með því að blogga og leyfa comment

Henrik said...

Ég hvet þig eindregið, tvídregið og þrídregið til að setja fleiri svona hreyfimyndgjörninga á síðuna. Aðeins þannig getum við nálgast hinn sanna Mása sem býr í okkur öllum - falinn í innsta draumi hversdagsins.

Skurðlingur said...
This comment has been removed by the author.
Kristjana Erna said...

ekkert net á akureyri?

Maze said...

nope, nema á spítalanum og þá er lokað fyrir social tengslanet eins og t.d. facebook