Tuesday, November 04, 2008

Sökudólgar kreppunnar

Úps. Ég er víst ekki hæfur til að koma nálægt viðskiptum, þar sem ég er karlmaður. Það er víst ólíklegt að ég hafi verið alinn upp til að taka tillit til annarra eða finna til og sýna samkennd.
Hvernig væri það ef karlar myndu koma fram í hrönnum og segja að ástæða kreppunnar séu þau ítök (litlu sem miklu) sem konur hafi haft í viðskiptum. Hinir kvenlegu eiginleikar hafi hreinlega mengað stöðugleika og valdið óróa og óöryggi sem olli svo því að bátnum hvolfdi? Talið sé að fyrirtíðarspenna hafi átt hlut að máli og verið sé að vinna að lausnum á því.

0 comments: