Wednesday, December 31, 2008

Það er gríðarlegur heigulháttur og tilgangslaus fylgispekt sem Kolbrún Bergþórsdóttir boðar í Mogganum í gær. Mér sýnist hún meira að segja vera að svara ákveðinni grein sem hún þorir ekki einu sinni að tilgreina.
Hún segir að það megi ekki vera ósáttur við eitthvað án þess að koma með tillögu að breytingu. Því er ég algjörlega ósammála. Það á ekki að þurfa að vera forsenda, til þess að mega sýna að maður sé ósáttur við núverandi stöðu mála, að maður sé með hugmynd um breytingu. Breytingin kemur líka þegar vígin falla.
Ég sé fyrir mér Kolbrúnu ræða við vinkonu sína hvers sambýliskona beitir ofbeldi á hverjum degi. Vinkonan er ósátt og vill slíta samvistum. Kolbrún segir þá á sinn yfirvegaða og rökvísa máta: "Já en þú verður þá að koma með hugmyndir um hverjum þú ætlar að búa hjá ef þú vilt ekki búa hjá henni".

0 comments: