Wednesday, December 31, 2008

Google smekklegir - view photos!

Það er gríðarlegur heigulháttur og tilgangslaus fylgispekt sem Kolbrún Bergþórsdóttir boðar í Mogganum í gær. Mér sýnist hún meira að segja vera að svara ákveðinni grein sem hún þorir ekki einu sinni að tilgreina.
Hún segir að það megi ekki vera ósáttur við eitthvað án þess að koma með tillögu að breytingu. Því er ég algjörlega ósammála. Það á ekki að þurfa að vera forsenda, til þess að mega sýna að maður sé ósáttur við núverandi stöðu mála, að maður sé með hugmynd um breytingu. Breytingin kemur líka þegar vígin falla.
Ég sé fyrir mér Kolbrúnu ræða við vinkonu sína hvers sambýliskona beitir ofbeldi á hverjum degi. Vinkonan er ósátt og vill slíta samvistum. Kolbrún segir þá á sinn yfirvegaða og rökvísa máta: "Já en þú verður þá að koma með hugmyndir um hverjum þú ætlar að búa hjá ef þú vilt ekki búa hjá henni".

Sunday, December 28, 2008

Nýji Animal Collective diskurinn er aaalltof góður. Sérstaklega lagið My Girls.

Saturday, December 20, 2008

Stjórnvöld eiga á suman hátt að vera eins og kríur. Sveima kringum varplendið. Verja það fyrir ránfuglum.
Þau hafa samt verið meira eins og dúfur. Tómt augnaráð. Flögrandi um stúkurnar. Skítandi á hausinn á táknmyndum þjóðarstoltsins.
En það er einn mikilvægur flötur á þessu.
Ef það hefðu verið sett höft á bankana á sínum tíma. Á tímum ímyndaða góðærisins þar sem ekki mátti gera neitt til að hrekja auðmennina úr landi. Auðmennina sem væru nú að skapa þessi “gífurlegu verðmæti” þá hefði aldeilis verið maldað í móinn. Andinn var einfaldlega þannig. Þá hefðum við einnig séð fólk á Austurvelli að baula og púa.
Það hefði þó óneitanlega verið öllu skemmtilegra að sjá Sigurjón Árnason, Bjöggana, Bjarna Ármanns, Hannes Smára og Jón Ásgeir vaðandi drulluna á Austurvelli.
Við megum ekki gleyma ránfuglunum. Þetta eru menn sem hafa unnið við það óáreittir að ljúga því að 2+2 séu 5. Í langan tíma.
Það er mjög mikilvægt að áherslan í mótmælunum liggi ekki bara á linkind stjórnvalda gagnvart illfyglum.
Mótbyr almennings gegn fjölmiðlalögunum á sínum tíma afsakar þó ekki stjórnvöld. Ábyrgðin er einnig þeirra. En gleymum ekki ránfuglunum. Þeir munu halda áfram að blóðga okkur og éta börnin okkar.